Óvíst er hvað verður um mörg þúsund tonn af hrossataði sem til fellur á höfuðborgarsvæðinu á ári hverju. Um 7 til 8 þúsund hestar tilheyra eigendum hestamannafélaga í Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði.
„Það hefur verið áætlað að um 30 til 40 þúsund tonn af hrossataði falli til á ári á höfuðborgarsvæðinu og það er meira en allur heimilisúrgangur sveitarfélaganna,“ segir Björn Halldórsson framkvæmdastjóri Sorpu. „Heildarmagn hrossataðs sem Sorpa tók á móti 2015 er 600 tonn og þar af 500 tonn frá Garðabæ,“ segir Björn.
„Losun hrossataðs er verkefni sem hver og einn hestamaður verður að leysa með aðstoð verktaka. Mér er ekki alveg kunnugt um hvað þeir gera við það,“ segir Magnús Benediktsson framkvæmdastjóri Hestamannafélagsins Spretts í Kópavogi og Garðabæ. „Hætta er á að vatnsból mengist en ábyrgðin á því liggur hjá sveitarfélögum,“ segir Björn Guðbrandur Jónsson framkvæmdastjóri Gróðurs fyrir fólk.
„Sorpa tekur við hluta hrossataðsins en sumir losa sig sjálfir við það sökum mikils kostnaðar sem fylgir urðun þess í Sorpu,“ segir Hjörtur Bergstað formaður Fáks. Hins vegar segir Björn að Sorpa „hafi ekki tekið á móti hrossataði frá hestamannfélaginu Fáki eða öðrum svo mér sé kunnugt um.“
Samkvæmt upplýsingum Páls Ólafssonar formanns Hestamannafélgsins Sörla í Hafnarfirði tekur Sorpa við þeirra úrgangi sem og félagasamtökin Gróður fyrir fólk sem sér um að nýta taðið til uppgræðslu. Í vikunni undirritaði Hafnarfjarðarbær 10 ára samning við samtökin um móttöku taðs úr helmingi hesthúsa í bænum, að sögn Helgu Ingólfsdóttur bæjarfulltrúa og formaðnns Umhverfis- og framkvæmdaráðs. Páli er ekki kunnugt um að hestamenn sjálfir eða verktakar séu að losa úrgang fyrir félagsmenn Sörla.
—–
Í samþykktum um hesthús og hesthúsahverfi í Reykjavík frá 1999 er þeim tilmælum beint til hestamanna „að nýta hrossatað til jarðræktar eða annarra sambærilegra nota, en að öðrum kosti flytja það á þar til ætlaðan móttökustað. Hvorki skal dreifa húsdýraáburði á vatnsverndarsvæðum, nema með sérstakri heimild Heilbrigðiseftirlits, né á stöðum þar sem hætta er á mengun vatns og jarðvegs“.
Valgerður Halldórsdóttir
ritstjorn@frettatiminn.is
The post Hrossatað getur ógnað vatnsbólum appeared first on Fréttatíminn.