Komdu blessuð og sæl, kæra Magga Pála og þakka þér innilega fyrir að gefa þér svona tíma til að svara okkur foreldrum. Ég les alltaf pistlana þína og stundum klippi ég þá líka út og hengi á ísskápinn til að minna mig á og líka til að ýta við manninum mínum sem mér finnst ekki vera nógu duglegur í pabbahlutverkinu. En ég ætlaði nú ekkert að vera að kvarta undan honum því að stundum finnst mér ég líka vera svo misheppnuð mamma … Ég verð stundum svo óþolinmóð og pirruð þegar ég er þreytt og finnst þau endalaust hanga í mér … Þau rífast og slást út af öllu … Mér finnst ég aldrei hafa tíma fyrir mig og er bara alltaf þreytt …
Við eigum tvö börn, strák og stelpu, og fólk segir við mig hvað við séum rík og að við séum bara komin með draumabörnin en mér líður ekki alltaf þannig. Stelpan er fimm ára og var alltaf auðveld þegar hún var yngri og við hjónin höfðum eitthvað svo mikinn tíma fyrir hana og hún gat alltaf verið með okkur. Strákurinn er tveggja og hálfs árs … Hann var alltaf miklu erfiðari og svo var hann með eyrnabólgur … Strákurinn komst í leikskóla um áramótin og þar gat ég haft hann lengur en hjá dagmömmunni … Ég sæki þau bæði seint til að ég komist ein í ræktina …
En fyrirgefðu þetta langa bréf en málið er að mig kvíðir svo fyrir sumarfríinu þegar leikskólinn lokar. Í fyrra var strákurinn enn að sofa á daginn og svo ég gat ég farið út með hann í kerrunni á kaffihús og svona … Maðurinn minn er smiður og brjálað að gera hjá honum á sumrin og þess vegna fórum við í frí í nóvember til Kanarí í fyrra en mamma passaði krakkana þá … Er ég ekki ómöguleg mamma …
Barneignir og lífið breytist …
Kæra móðir. Þú afsakar að ég þurfti að stytta þitt frábæra bréf en þú vekur máls á gríðarlega mikilvægri staðreynd í okkar samfélagi sem fáir foreldrar þora að ræða upphátt; sem sagt að barneignir færa foreldrum ekki bara hamingju. Börn krefjast endalausrar vinnu, þau þarfnast gríðarmikillar athygli, þau krafsa í taugar foreldranna sem flestir eru þreyttir eftir vinnu eða nám utan heimilis og þarfir þeirra krefja foreldra um að setja sínar eigin þarfir í annað sætið. Allt þetta gengur þvert á það sem nútímasamfélag hefur kennt ungu fólki því allt hefur snúist um að allir geti gert allt sem þeir vilja og þegar þeir vilja, að allir eigi að rækta sig og sínar þarfir og fylgja sínum eigin löngunum. Að auki er ímyndin um börn sýnd rósrauðum bjarma sem hámark hamingjunnar í parasambandi og hamrað á að barneignir eigi ekki að hamla fólki (í reynd konum) frá námi og starfsframa og áhugamálum og þátttöku í öllu því sem er í boði; ræktin og kaffihúsin og vinkonur og vinir og leikhúsferðir og rómantísk útlandafrí, svo dæmi séu tekin.
Barnafrí – foreldravinna
En – svo fæðast börnin og hvert eitt og einasta breytir lífi foreldra sinna gríðarlega. Fyrsta barn reynir á þar sem foreldrarnir eru að glíma við allt í fyrsta sinni en um leið er gleðin og ástin til barnsins svo ný og óvænt og margt er svo auðvelt með aðeins eitt barn í fangi. Barn nr. tvö tvöfaldar ekki álagið heldur margfaldar það eða „eitt sem ekkert, tvö sem tíu,“ sögðu lífsreyndar konur hér áður fyrri. Sem sagt; framundan er hörkuvinna sem heitir sumarfrí barna og þau þurfa hvíld frá þessu venjubundna lífi. Þau þurfa tíma með foreldrum sínum og þið öll þurfið að læra að vera öll saman og skapa fjölskylduminningar sem ásamt mörgu fleiru verður fjölskyldustyrkurinn ykkar um alla framtíð. Allir geta tekið eitthvert frí og maðurinn þinn líka enda völduð þið að eiga börnin ykkar. Það er ekki léttvæg ákvörðun.
Taktu ábyrgðina og planaðu fríið
Hins vegar munt þú þurfa að taka ein ábyrgð á hluta frísins og hana skaltu axla á skynsamlegan hátt. Besta leiðin er að skipuleggja dagana til að forðast úfin og úrill börn fram undir hádegi sem geta þá valdið pirringi hjá þér og átökum milli systkina. Það margborgar sig að fara út með þau eftir morgunmatinn þótt þig langi að kúra lengur og skildu símann eftir heima. Alls staðar má finna skemmtilega róluvelli og sundferðir slá í gegn. Taktu rólega stund með þeim eftir matinn, hver veit nema sá yngri sofni og þú getur þá gefið stelpunni þinni góðan tíma. Húsdýragarðurinn með nesti dugar heilan dag og fáðu endilega vinkonu eða einhvern fullorðinn með þér ef hægt er. Allir geta skemmt sér og þá nærð þú að spjalla ögn á fullorðinsnótum. Svo getur þú líka leitað aðstoðar í fjölskyldu- eða vinahópi. Er einhvers staðar ungmenni sem væri til í að taka vaktina einhverja daga eða getur einhver tekið einhverja seinniparta svo þú komist aðeins frá. Það er nauðsynlegt.
Ástin útheimtir sitt
Allt verður auðveldara þegar foreldrar viðurkenna álagið sem barnastússið útheimtir og mundu svo, kæra móðir, að þessi fyrstu ár ganga yfir. Þinn tími mun koma með rólegum fríum og kvöldnæði við tölvuna og ótrufluðum samskiptum við manninn þinn. Álagið er hér og nú, vertu raunhæf, stattu vaktina – og horfðu svo á þau á koddanum á kvöldin þegar þér hefur tekist að skapa góðan dag og svæfa snemma. Ekkert í heiminum mun nokkru sinni jafnast á við það; hina tæru hamingju og ást sem er ástæða þess að þrátt fyrir allt munum við áfram kjósa að eignast börnin okkar.
The post Börn eru ekki bara hamingja appeared first on Fréttatíminn.