Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Mikilvægt að fræða fólk og uppræta staðalímyndir

$
0
0

Hinseginleikinn er snapp þar sem fólk getur fengið innsýn í líf hinsegin fólks í öllum regnbogans litum og gerðum.

„Hugmyndin að þessu kviknaði af því að við höfum farið í menntaskóla með fyrirlestra um skaðsemi staðalímynda og mikilvægi fyrirmynda þegar kemur að hinseginveruleika. Þar höfum við séð hversu mikilvægt það er að fræða ungmenni um hinseginveruleika og afrugla allar þær mýtur sem hafa fengið að grassera um slíkt alltof lengi,“ segir Ingileif Friðriksdóttir, laganemi og blaðamaður, sem ásamt unnustu sinni, Maríu Rut Kristinsdóttur, opnaði Snapchat-aðgang sem ber nafnið Hinseginleikinn.

Hinseginleikinn er snapp þar sem fólk getur fengið innsýn í líf hinsegin fólks í öllum regnbogans litum og gerðum. „Eftir að hafa farið í skólana með fyrirlestra þá fundum við fyrir mjög miklum áhuga frá fólki og það hafði rosalega margar spurningar en það vantaði vettvanginn til þess að spyrja. Við hugsuðum þetta snapp þess vegna svolítið sem stað þar sem fólk gæti spurt spurninga, jafnvel nafnlaust ef það kýs. Einstaklingar geta til dæmis verið í vafa með sjálfan sig, þora ekki að segja frá því og vita ekki alveg hvert á að leita og óttast kannski að spyrja hvern sem er út í svona mál. Hinseginleikinn er vettvangur fyrir spurningar, opnar umræðuna og hjálpar okkur að koma í veg fyrir ranghugmyndir fólks um það hvað það er að vera hinsegin.“

Þær Ingileif og María hafa fengið til liðs við sig alls kyns gestasnappara til þess að taka yfir snappið reglulega. „Til þess að vitundavakningin verði sem öflugust og víðtækust höfum við fengið fullt af góðu fólki með okkur í lið. Það sem við viljum er að taka alla flóruna, bara eins og hinseginleikinn leggur sig. Á næstu dögum verður hjá okkur stelpa sem er intersex, sem þýðir að þú fæðist með óræð kynfæri. Fljótlega kynnumst við svo kynsegin manneskju, það er þá einstaklingur sem skilgreinir sig hvorki sem karl eða konu, heldur hvorugkyn eða bæði í einu. Allt flokkast þetta undir hinseginregnhlífina og er eitthvað sem við höfum fengið margar spurningar um, til dæmis á fyrirlestrum okkar.“

Á aðeins tveimur vikum hefur Hinseginleikinn fengið á annað þúsund fylgjendur á Snapchat. „Við finnum að fólk er forvitið og með því að fá fjölbreytt fólk til þess að taka yfir snappið þá vekjum við áhuga og opnum umræðuna. Ef ég hefði haft eitthvað svona til þess að fylgjast með þegar ég var 15 eða 16 ára þá hugsanlega hefði ég komið fyrr út úr skápnum af því að um leið og maður fræðist og losar sig við ranghugmyndir sér maður að þarna er bara eðlilegt fólk sem lifir eðlilegu lífi og er ekkert öðruvísi þó það sé hinsegin.“

Blaðamaður hvetur áhugasama til þess að fylgjast með hinseginleikanum á Snapchat, undir notendanafninu Hinseginleikinn.

The post Mikilvægt að fræða fólk og uppræta staðalímyndir appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652