Vilborg Arna Gissurardóttir, sem er betur þekkt sem Vilborg pólfari, hefur verið ráðin sölu- og markaðsstjóri Sagafilm.
Vilborg gekk Suðurpólinn árið 2013 og hefur verið þekkt á Íslandi undanfarin ár fyrir afrek sín og samfélagsverkefni. Fyrr í ár ætlaði hún að ganga á Everest-fjall en lenti í jarðskjálftanum í Nepal og þurfti að hætta við. Vilborg er með MBA gráðu frá Háskóla Íslands og B.A. gráðu í ferðamálafræðum. Vilborg hefur frá árinu 2012 starfað undir sínu eigin vörumerki á sviði fjallamennsku og sem hvatningarfyrirlesari. Hefur hún farið víða um heim með verkefni sín.
Vilborg tekur við starfinu af Öldu Karen Hjaltalín sem hyggur á nám í Háskóla Íslands haust.
The post Pólfari til Saga Film appeared first on FRÉTTATÍMINN.