Þóra Björg Snorradóttir er ein þeirra sem ætla að hlaupa Laugavegshlaupið um helgina. Hún hleypur sér til skemmtunar og til að takast á við það óvænta en á þessari 55 km leið er fjölbreytt landslag og allra veðra von. Aldrei hafa fleiri keppendur skráð sig til þátttöku, 429 manns af 29 þjóðernum.
„Ég hafði hlaupið í nokkur ár þegar ég prófaði utanvegahlaup og féll fyrir því. Þetta eru langskemmtilegustu hlaupin,“ segir Þóra Björg Magnúsdóttir sem ætlar að hlaupa Laugavegshlaupið um helgina. Hlaupið er nú haldið í nítjánda sinn og hafa aldrei fleiri keppendur skráð sig til þátttöku, 429 manns af 29 þjóðernum. Hlaupið hefst í Landmannalaugum og því lýkur í Húsadal í Þórsmörk. Venjan er að ganga þessa vinsælu gönguleið á fjórum dögum en met hlaupatími á þessari 55 km leið er 4 klukkustundir og 7 mínútur í karlaflokki og 5 klukkustundir í kvennaflokki.
Hleypur á Esjuna einu sinni í viku
„Ég er mikil göngumanneskja og hefur aldrei þótt malbikið neitt sérlega skemmtilegt en með utanvegahlaupunum slæ ég tvær flugur í einu höggi og fæ að njóta náttúrunnar á meðan ég hleyp. Það er ekki bara skemmtilegra að hlaupa utan vega, það er líka léttara. Undirlagið er mýkra og fer betur með mann, allavega með mig,“ segir Þóra Björg sem hljóp sitt fyrsta Laugavegshlaup árið 2009 og tekur þátt í annað sinn um helgina. Hún segist hlaupa sér til skemmtunar en að sjálfsögðu verði álagið mun meira þegar verið sé að undirbúa sig undir keppni. „Ég æfi mig með hlaupahóp ÍR og hópurinn æfir mikið í Heiðmörk en líka á Esjunni, það er okkar fjall. Nokkrum vikum fyrir keppni byrjum við að hlaupa upp Esjuna einu sinni í viku en rétt fyrir keppni oftar. Auðvitað er fólk í misgóðu formi og best er að ákveða að fara í svona keppni með góðum fyrirvara.“
Mikil stemning í hlaupinu
„Þetta er elsta og þekktasta utanvegahlaupið og það er mjög skemmtilegt að taka þátt. Maður er alltaf að takast á við mismunandi aðstæður og veit í raun aldrei hvað gerist. Núna er til dæmis mjög mikill snjór á köflum. Það getur verið brjálað veður en það getur líka verið allt of gott veður. Það er hluti af skemmtuninni að takast á við það óvænta. Það er gott að setja sér markmið og svo er bara svo mikil stemning í hlaupinu. Það eru allir svo glaðir og ánægðir með að upplifa þetta með hópnum. Þetta er ekkert nema gleði.“
Búnaður:
Á hálendinu er betra að vera vel búin þar sem veðrabreytingar geta verið snarpar. Gott er að hafa léttan bakpoka í lengri vegalengdir fyrir öryggisbúnað, nesti og hlífðarfatnað.
Langerma bolur og síðbuxur, hlaupajakki, höfuðbúnaður, vettlingar, neoprensokkar og skóhlífar.
Góðir hlaupaskór fyrir styttri vegalengdir en ráðlagt er að fjárfesta í „trail“ hlaupaskóm fyrir lengri vegalengdir utan vega.
Fleiri utanvegahlaup í sumar:
24. júlí Fáskrúðsfjarðarhlaupið 10 / 21 km
25. júlí Hengill Ultra 24 / 50 / 81 km
25. júlí Fjögurra skóga hlaupið 4 / 10 / 17 / 30 km
01. ágúst Barðsneshlaupið 13 / 27 km
08. ágúst Jökulsárhlaupið 13 / 20 / 32 km
The post Skemmtilegra að hlaupa í náttúrunni appeared first on FRÉTTATÍMINN.