Tónlistarmaðurinn Júníus Meyvant sem nýverið gaf út stuttskífu er á leiðinni í lítið tónleikaferðalag um Evrópu. Kappinn mun heimsækja Danmörku og Þýskaland meðal annars áður en hann kemur heim og spilar á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Júníus er frá Eyjum og verður því vel tekið eftir ferðalagið. Búist er við því að ekki líði á löngu þar til fyrsta breiðskífa kappans kemur út, en margir bíða hennar með óþreyju þar sem lögin hans Colour Decay og það nýjasta, Hailslide hafa notið gríðarlegra vinsælda.
The post Júníus Meyvant fer á flug appeared first on FRÉTTATÍMINN.