Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Jól æsku minnar: Fyllti stofuna hvítu skýi

$
0
0

„Ég er mjög mikið jólabarn og hef alltaf haldið mikið upp á jólin,“ segir Árný Margrét Agnarsdóttir sem er löngu farin að huga að jólunum þó enn séu tveir mánuðir til stefnu. Í vikunni birti hún færslu í hópnum Skreytum hús á facebook, þar sem fólk skiptist á hugmyndum um allt sem tengist heimilinu, og spurði hvor fleiri en hún væru búnir að ákveða þema fyrir jólin. Sjálf sagðist hún loksins vera búin að ákveða sig. Færslan fékk góðar undirtektir og margir deildu hugmyndum að jólaþema, þannig Árný er greinilega ekki sú eina sem byrjuð er að spá í jólin. En það verður ekki af henni tekið að hún er tímanlega í þessu.

Róandi að hafa stílhreint

„Ég byrja yfirleitt að spá í þetta í september, jafnvel fyrr. Ég valdi jarðtónaliti núna. Mér finnst vanta meira af þeim inn á heimilið, því það er svo mikið svart og hvítt hjá okkur. Mér finnst passa svo vel að hafa jarðliti við svarta og hvíta hönnun.“
Árný kýs frekar að hafa skreytingarnar stílhreinar og ekki of marga liti. „Ég verð alveg ómöguleg í rýmum þar sem eru of margir litir og of margir stílar saman, mér finnst svo róandi að hafa allt stílhreint.“

29750-jolatre

Litríkt minnir á æskuna
Hún byrjaði að hafa ákveðið þema í jólaskreytingum hjá sér fyrir þremur árum. Árið 2014 var hún með hvítt og rautt þema en í fyrra var það litríkt. „Mér finnst það alveg fallegt. Það minnir mig á æskuna, en mér finnst það samt ekki passa við mig. Ég er mjög hrifin af þessum Ikea stíl og finnst alveg æðislegt að fara í Ikea fyrir jólin. Þau eru með mikið af jarðlitum, hvítu og rauðu. Það hefð hjá mér að fara fyrir hver jól og kaupa eitthvað smá skraut.“

29750-jolatre1

Kærastinn heldur aftur að henni
Árný er í raun það mikið jólabarn að helst vildi hún vera búin að skreyta. „Mig langar að skreyta í október en kærastinn segir að eigi að byrja í nóvember. Hann vill reyndar að ég geri þetta í desember, en við komumst að samkomulagi um að ég skreyti um miðjan nóvember,“ segir hún og hlær. „Ef það væri ekki fyrir hann þá væri ég búin að skreyta, honum finnst það skemma fyrir að skreyta of snemma, en ég er auðvitað ekki sammála því,“ segir hún kímin. „Mér finnst jólin eiginlega bara eiga að vera allur veturinn, ekki bara ein helgi eða vika í desember. Þetta er bara vetrarhátíð.“

29750-jolajol1

Skoðar skreytingar hjá öðrum
Sem mikið jólabarn þá heldur Árný í nokkrar fastar hefðir í kringum jólin. Ein þeirra er að keyra um með móður sinni og skoða jólaskreytingar hjá öðrum. Það hafa þær gert saman síðan hún var barn. „Svo í fyrra þá gaf mamma mér stjörnuna sem ég ólst upp við að hafa á jólatrénu hjá okkur. Hún er reyndar mjög litrík og „eighties-leg“ en ég er að spá í að taka ljósin úr henni og setja glæra seríu í staðinn.“

29750-jolajol

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652