Forsetakosningar fara fram eftir tæpt ár en meirihluti landsmanna hefur ekki myndað sér skoðun á því hvern þeir vilja sjá sem næsta forseta lýðveldisins, samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallup. Rúmlega 1400 einstaklingar voru spurðir hvern þeir myndu vilja sjá sem næsta forseta Íslands og var þátttökuhlutfall 55,5%.
Aðeins 38% tóku afstöðu til spurningarinnar og af þeim vill 21% sjá Jón Gnarr sem næsta forseta, 17% Katrínu Jakobsdóttur, 11% Ólaf Ragnar Grímsson, 8% Þóru Arnórsdóttur og 6% Rögnu Árnadóttur. Minna fylgi fengu Davíð Oddsson, Þórarinn Eldjárn og Kristín Ingólfsdóttir. 28% þeirra sem tóku afstöðu vilja hins vegar sjá einhvern annan í embætti forseta og 3% kjósa að fá einhverja konu í embættið. Jón Gnarr virðist höfða frekar til karla en kvenna sem forseti, en ríflega 26% karla sjá hann fyrir sér sem næsta forseta á móti um 13% kvenna. Á sama tíma virðist Katrín Jakobsdóttir frekar höfða til kvenna en karla sem forseti, en 22% kvenna sjá hana fyrir sér sem næsta forseta á móti 13% karla.
Bæði Jón Gnarr og Katrín Jakobsdóttir hafa lýst því yfir að þau hyggist ekki sækjast eftir forsetaembættinu. Jón Gnarr var nýverið ráðinn ritstjóri innlendrar dagskrárgerðar hjá 365 miðlum og Katrín sagði í viðtali við DV nýverið að hún ætti erfitt með að sjá sig í hlutverki forseta. Vinsælustu kandídatarnir verða því að teljast ólíklegir arftakar sitjandi forseta. Ólafur Ragnar greindi frá því í viðtali á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í vikunni að hann hefði ekki útilokað að bjóða sig fram á ný. Það er því óljóst eins og er hvort Ólafur Ragnar verði fyrsti forsetinn til að gegna embætti í tæpan aldarfjórðung, eða hvort nýr forseti taki við að ári liðnu.
The post Kjósendur óvissir um næsta forseta appeared first on FRÉTTATÍMINN.