Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Vill sjá fleiri konur í hugbúnaðargerð

$
0
0

Nýjasta afkvæmi frumkvöðulsins Sesselju Vilhjálmsdóttur er forritið Tagplay sem situr nú á efsta sæti lista Product Hunt yfir nýjar og spennandi vörur sprotafyrirtækja. Sesselja segir að það þurfi mikla þolinmæði til vinna í sprotaumhverfinu og til að láta hugmynd verða að veruleika. Tækifærin í hugbúnaðargeiranum séu þó óþrjótandi, ekki síst fyrir konur en á ráðstefnum erlendis er Sesselja oftast ein af örfáum konum.

„Allt of fáar fyrirmyndir gera það að verkum að stelpur eru ekki að sækja mikið í þetta umhverfi sem er sorglegt því hugbúnaðargerð er mjög skapandi og skemmtileg.“

„Frá því að ég man eftir mér hef ég verið að búa eitthvað til. Mér hefur líka alltaf þótt aðlaðandi að geta verið minn eigin herra og að geta lifað á eigin hugmyndum,“ segir Sesselja Vilhjálmsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri hugbúnaðarfyrirtækisins TagPlay. Sesselja lærði upphaflega hagfræði og vann í banka áður en hún leiddist inn á frumkvöðlabrautina. Hennar fyrsta verkefni, borðspilið Heilaspuni, kom á markað árið 2009 og seldist upp á nokkrum dögum. Næsta verkefni var heimildarmyndin Startup Kids sem Sesselja framleiddi ásamt Valgerði Helgadóttur með styrk frá Evrópu unga fólksins. Myndin fjallar um heim ungra frumkvöðla í Bandaríkjunum og Evrópu og þrátt fyrir að hafa ekki farið hátt á Íslandi hefur hún fengið gríðarlega góðar viðtökur erlendis þar sem hún hefur verið þýdd á fjölda tungumála og komist meðal annars í annað sæti yfir mest seldu heimildarmyndirnar á Amazon og i-tunes. Sesselja segir gerð myndarinnar hafa verið góðan skóla. „Gerð myndarinnar var ákveðin leið fyrir mig til að læra og kynnast fólki. Við ferðuðumst mikið á sínum tíma til að fylgja myndinni eftir og kynntumst þessum heimi því vel. Áhuginn á efninu er greinilega mikill því það er enn verið að hafa samband við okkur út af henni.“

22524SesseljaVilhjálmsdóttir

Sá tækifærin í samfélagsmiðlunum

Gerð Startup Kids var Sesselju og Valgerði hvatning til frekari framkvæmda og áður en gerð hennar lauk voru þær búnar að koma nýju farsíma-appi á markað. „Kinwins var hvatningarleikur fyrir fullorðna sem var líka mikill skóli að gera. En þetta var í raun allt of mikil vinna á þessum tíma. Við gátum ekki einbeitt okkur nógu vel að honum og í dag er hann ekki lengur á markaðinum,“ segir Sesselja sem var þó stuttu síðar komin á fullt með sitt nýjasta afsprengi, Tagplay. „Ég vann um tíma sem ráðgjafi í markaðsmálum á netinu fyrir auglýsingastofur. Þá tók ég fljótlega eftir því að eitt stærsta vandamál auglýsenda var að þeir voru að eyða miklum fjármunum og tíma í að búa til mjög flottar vefsíður sem síðan misstu marks því þær voru ekki lifandi. Á sama tíma tók ég eftir því hversu auðvelt fólk á með að nota samfélagsmiðla og ákvað því að hanna hugbúnað sem tengdi þetta tvennt saman. Tagplay er hugbúnaður sem gerir fyrirtækjum kleift að stjórna heimasíðum sínum eingöngu í gegnum samfélagsmiðla.“

Frumkvöðlar þurfa mikla þolinmæði

„Við erum búin að vera í þróunarfasa heillengi en núna erum við komin með góða vöru í hendurnar og þá tekur markaðsstarfið við. Við gáfum forritið út fyrir þremur mánuðum á Íslandi og höfum verið að betrumbæta það síðan og núna erum við að byrja að kynna vöruna í erlendis,“ segir Sesselja en á aðeins einni viku hefur Tagplay náð mikilli athygli úti og situr núna í fyrsta sæti Product Hunt listans yfir áhugaverðar nýjar vörur.
Sesselja ferðast mikið vegna starfsins og eyðir drjúgum hluta ársins í San Francisco og New York. Hún segir fólk í frumkvöðlageiranum þurfa að vera tilbúið til að leggja á sig gífurlega vinnu auk þess að vera gætt mikilli þolinmæði. „Það er alltaf rosalega gaman í byrjun en svo er erfiðara að fylgja hugmyndinni eftir því það getur gengið upp og ofan. Eins er mikil vinna sem felst í því að fjármagna fyrirtæki.“

Fáar kvenfyrirmyndir í bransanum

Sesselja segir felast mikil tækifæri í hugbúnaðarþróun fyrir konur. „Það vantar klárlega konur í bransann. Það er aðeins að aukast að konur fari í tækninám sem er gott, en það þarf samt ekkert endilega að vera tæknimenntaður til að geta unnið í hugbúnaði. Það skiptir líka miklu máli að vera skapandi og drífandi. Allt of fáar fyrirmyndir gera það að verkum að stelpur eru ekki að sækja mikið í þetta umhverfi sem er sorglegt því hugbúnaðargerð er mjög skapandi og skemmtileg. Langmest af því sem er hannað í dag er þróað af karlmönnum sem þar af leiðandi er kannski hugsað fyrir frekar þröngan markað. Svo það er heill heimur þarna eftir. Konur eru að miklu leyti mun betri markhópur en karlar því rannsóknir sýna að þær kaupa mun meira fyrir heimilið, tala meira um vörur en karlmenn og það er tekið mark á því sem þær segja um vörur. Vöntun á stelpum á ekki bara við um hugbúnaðargerð heldur bara allt start-up umhverfið. Þegar ég fer á tækniráðstefnur erlendis er ég oftast ein af örfáum konum og það væri miklu betra ef þær væru fleiri.“

Fjölskylduvæn vinna

„Við erum núna á leið inn í nýtt tímabil í hugbúnaðargerð sem býður upp á ótrúleg tækifæri. Það er orðið mun ódýrara að stofna fyrirtæki í dag og í dag er hægt að koma af stað hugbúnaðarþjónustu á frekar litlum tíma fyrir frekar litinn pening,“ segir Sesselja og bendir á að almennt sé starfsumhverfi að verða sveigjanlegra og þá sérstaklega í öllu sem tengist netinu. Hugbúnaðargerð geti því hentað fjölskyldufólki mjög vel. „Það er oft talað um að konur stofni fyrirtæki seinna er karlmenn, þegar þær eru komnar yfir fertugt og búnar að eignast börn. En hugbúnaðarfyrirtækin geta hentað mæðrum vel því það er hægt að vinna þessa vinnu í hvar sem er og hvenær sem er. Með tilkomu netsins er allt orðið svo sveigjanlegt. Það er orðið mjög algengt í Bandaríkjunum að fólk geti fengið að vinna hvar sem það vill, svo lengi sem það skili af sér. Verktakahagkerfið er orðið miklu algengara því það er svo auðvelt að taka sér verkefni í gegnum netið. Við erum á leið inn í alveg nýjan vinnumarkað og það er mjög spennandi að taka þátt í því.“

 

The post Vill sjá fleiri konur í hugbúnaðargerð appeared first on FRÉTTATÍMINN.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652