Nanna Elísa Snædal Jakobsdóttir er 25 ára Reykvíkingur með smá slettu af Jökuldal, eins og hún orðar það sjálf. Hún lauk BA-prófi í lögfræði síðasta vor og stefnir á nám í alþjóðasamskiptum erlendis á næstunni. Fram að því er hún að vinna á Vísi, situr í háskólaráði HÍ og er formaður landssamtaka íslenskra stúdenta. Nanna borðar á Gló og býr til frábæra brokkólípítsu.
Staðalbúnaður
Það er pínu kómískt hversu ósamstæðan fatastíl ég hef. Þegar ég fer í vinnu er ég bara „Nanna normcore“ í einhverju þægilegu og nenni ekki að mála mig. Svo get ég verið ótrúlega uppstríluð og fín ef ég er að fara á einhvern fund. Ætli stíllinn minn sé ekki kannski að vera svolítið ófyrirsjáanleg. Ég er reyndar núna að reyna að haga mér í samræmi við aldur og ganga með fína skartgripi. Ég er að henda þessu H&M-dóti sem skilur eftir sig brúnan hring á manni. Ég fékk nýjan hring frá Aurum í afmælisgjöf og set nú stefnuna á að ganga með íslenska skartgripi.
Hugbúnaður
Mér finnst ótrúlega gaman að fylgjast með fólki og samfélaginu, hvernig allt virkar. Það er kannski ástæðan fyrir því að ég fór í lögfræði og svo í blaðamennsku. Ég er vakin og sofin yfir því hvernig ég get fengið nemendur í háskólum á Íslandi að láta í sér heyra um námið og aðbúnað í skólum svo við getum haft áhrif á stefnumótun í skólakerfinu. En þegar ég er ekki að reyna að breyta heiminum finnst mér gaman að fara út að dansa á Kiki og Húrra. Í sumar ákvað ég að gera tilraun með að hætta að drekka áfengi. Eftir það hef ég djammað og dansað miklu meira og skemmt mér betur svo tilraunin er smám saman að breytast í nýjan lífsstíl, alla vega eitthvað út árið. Bestu stundir vikunnar eru þegar ég fæ mér kaffi á morgnana með vinkonum og vinum á Reykjavík Roasters. Ég fer alveg í ræktina en það er líka líkamsrækt að drekka kaffi með þeim því ég hlæ svo mikið. Ég uppgötvaði Amy Schumer svolítið seint en síðustu mánuði hef ég verið að drekka í mig allt sem ég get fundið frá henni. Það er ótrúlegt hvað hún hefur breytt hugarfari margra með beittu glensi.
Vélbúnaður
Ég hef stundum áhyggjur af því að iPhone-inn minn límist við hendurnar á mér. Ég nota hann mjög mikið og er mjög virk á öllum samfélagsmiðlum. Facebook er orðið að vinnutæki og það hræðir mig pínu hvað ég nota það mikið. Mér finnst líka geggjað að nota Snapchat og það er skemmtilegt hvernig hver og ein manneskja getur orðið að sketsahöfundi með snjallsímann sinn. Sjálf reyni ég að gera mitt besta til að vera skemmtileg, mikilvægast er að taka sjálfan sig ekki of alvarlega.
Aukabúnaður
Ég er alltaf að prófa mig áfram með elda eitthvað heilsufæði. Ég er fræg fyrir brokkólípítsuna mína og hef snúið mörgum pítsuelskendum yfir á hana. Þegar ég fer út að borða finnst mér gott að fara á Gló en annars er ég líka dugleg að borða bara maískökur með hnetusmjöri og sultu. Ég lifi bíllausum lífsstíl, svona innan gæsalappa. Ég reyni að labba og taka strætó en hef samt aðgang að bílnum hans pabba og nota hann óspart. Í sumar gekk ég Strútsstíg með Auði vinkonu minni. Við vorum í fimm daga án samfélagsmiðla, internets og rafmagns og þetta var kynngimagnað. Ótrúleg lífsreynsla sem var bæði róandi og gaf manni mikinn kraft. Ég ætla að ferðast meira um hálendið í framtíðinni. Næsta vor stefni ég á að fara á Interrail-ferðalag um Austur-Evrópu. Ég fór til Rúmeníu á síðasta ári og það opnaði augu mín fyrir nýjum heimi sem mig langar að kynnast betur. Uppáhalds staðurinn minn er samt alltaf sumarhúsið hennar ömmu í Danmörku. Amma og afi keyptu sér hús í Dragør á Sjálandi fyrir mörgum árum, ótrúlega heillandi gult hús með arni. Þarna er alltaf gott veður og góð lykt.
The post Dansa meira eftir að ég hætti að drekka appeared first on Fréttatíminn.