Mæður Íslands er nýtt íslenskt leikverk sem verður frumsýnt í Bæjarleikhúsinu í Mosfellsbæ í næstu viku. Leikverkið er unnið út frá frásögnum og sögum um íslenskar konur, líf þeirra, tilfinningar, hvernig þær hafa áhrif á aðra og hvernig aðrir upplifa þær. Leikararnir skapa og skrifa leikverkið ásamt leikstjóranum Agnesi Wild og segir hún leikhópinn, sem skipaður er konum á aldrinum 17 til 80 ára, hafa komið með magnaðar sögur á borðið þegar hópurinn samdi handritið.
„Allt sem kemur fram er sannsögulegt en við tökum okkur vissulega skáldaleyfi þar sem það á við og gerðum þetta leikhúsvænna. Sögurnar eru ólíkar þar sem við erum bæði með sögur frá þeim yngstu og þeim elstu í hópnum,“
„Þetta er nýtt íslenskt leikverk sem við unnum með samsköpunaraðferð, eins og það er kallað,“ segir Agnes Wild, leikstjóri sýningarinnar Mæður Íslands.
„Það var ekkert handrit fyrst en það var unnið úr sögum um konur frá leikhópnum sjálfum. Titillinn er hugmyndin sem við vinnum út frá. Þetta er hugmynd sem mig, ásamt Sigrúnu Harðardóttur, höfundi tónlistar, og Evu Björg Harðardóttur, leikmynda- og búningahönnuði, langaði að framkvæma. Okkur fannst þetta áhugavert umræðuefni,“ segir hún. „Okkur langaði að fjalla um „móðurina“ „dótturina“ og „konurnar.“ Það eiga það allir sameiginlegt að vera fæddir af konu og eiga móður, eða ömmu þrátt fyrir að vera ekkert endilega alin upp hjá þeim,“ segir Agnes.
„Í verkinu leika tíu leikkonur á aldrinum 17 til 80 ára og við erum þrír ættliðir sem eru saman í þessu. Ég, mamma og amma,“ segir hún. „Svo eru einar mæðgur líka og þetta er mjög flottur hópur kvenna sem er saman í þessu. Við unnum sögur og verkefni saman. Vorum með bréfaskriftir og þetta eru allt sannar sögur sem við unnum með. Ekki endilega reynslusögur þessarra kvenna en þær höfðu allar heyrt þessar sögur frá sínum mæðrum, ömmum eða langömmum,“ segir Agnes.
„Allt sem kemur fram er sannsögulegt en við tökum okkur vissulega skáldaleyfi þar sem það á við og gerðum þetta leikhúsvænna. Sögurnar eru ólíkar þar sem við erum bæði með sögur frá þeim yngstu og þeim elstu í hópnum,“ segir hún. „Svo við erum að fjalla um nútímakonuna og konurnar úr fortíðinni.“
Leikfélagið í Mosfellsbæ hefur sett upp tvær sýningar á ári undanfarin ár og hefur aðsóknin alltaf verið mjög góð. „Þetta er haustsýningin okkar í ár, en við ætlum líka að vera með jólasýningu þar sem við einbeitum okkur að yngri kynslóðinni. Þessi sýning er fyrir fullorðna og umfangið er mikið,“ segir Agnes. „Tónlistin er frumsamin og flutt í sýningunni og við breytum svolítið útliti leikhússins í þessari sýningu og leikum okkur svolítið með formið.“
Leikfélag Mosfellsveitar var stofnað árið 1976 og var í ár valið bæjarlistamaður Mosfellsbæjar. „Nafninu hefur samt aldrei verið breytt,“ segir Agnes. „Þegar sveitin breyttist í bæ þá var það einhver íhaldssemi og stolt sem varð til þess að leikfélagið hélt sveitarnafninu og það er bara skemmtilegt,“ segir Agnes Wild leikstjóri.
Mæður Íslands verður frumsýnt þann 30. september og allar nánari upplýsingar má finna á Facebooksíðu Leikfélags Mosfellssveitar.
The post Sannar sögur af íslenskum konum appeared first on Fréttatíminn.