Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Hef alltaf verið með eitthvað á prjónunum

$
0
0

Thelma er búsett í Kaupmannahöfn ásamt fjölskyldu sinni en fatahönnunaráhuginn kviknaði snemma og þar spilaði prjónaskapur stórt hlutverk. „Mamma kenndi mér að prjóna þegar ég var sex ára gömul og í framhaldi af því kenndi hún mér á saumavél,“ segir Thelma, sem var iðin við að prjóna á dúkkurnar sínar. „Allar dúkkurnar mínar áttu handprjónaðar peysur, og trefil og húfu í stíl.“

22991 thelma prjónapeysa 2

Færeysk hönnun og Copenhagen Fashion Week

Thelma útskrifaðist frá fatahönnunarbraut í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti árið 2010. Eftir útskrift starfaði hún hjá sérvörusviði Haga. „Þar var ég í þjónusturstarfi hjá All Saints, Day Birger et Mikkelsen og Karen Millen. Planið var að safna peningum og flytja til Kaupmannahafnar og hefja nám úti, en ég var mjög ánægð með starfið þar sem ég fékk mikið frelsi þegar kom að því að sjá um stíliseringu, innkaup og annað tengt rekstrinum hjá Day, svo ég ílengdist í starfinu. Með vinnu var ég þó alltaf í fjarnámi, þá aðallega í markaðsfræði og öðrum áföngum sem tengjast rekstri.“

 

Thelma var svo stödd í sumarfríi í Kaupmannahöfn þegar hún fann draumaskólann, Københavns Erhversakademi, og hóf nám þar haustið 2014. Starfsnám er hluti af náminu og Thelma setti sig í samband við færeyska hönnuðinn Barböru í Gongini, eftir ábendingu frá kennara við skólann. „Ég fékk viðtal þar sem ég seldi mig svolítið út á það að vera prjónari. Barbara sérhæfir sig í flóknum og tímalausum klæðskerasniðum með hráu yfirbragði og fallegum efnum.“ Prjónaverk Thelmu áttu því vel heima hjá færeyska hönnuðinum og naut hún starfnámsins. „Ég hef lært mikið og tekið þátt í skemmtilegum verkefnum, til dæmis tískuvikunni í Kaupmannahöfn.“

22991 skór
Thelma tók þátt í að hanna og prjóna fyrir vor- og sumarlínu Barböru í Gongini 2016, sem sýnd var á tískuvikunni í Kaupmannahöfn. Mynd/Thelma Steimann

Flíkur sveipaðar dulúð

Thelma hefur ávallt verið með eitthvað á prjónunum og í haust kom fyrsta fatalínan hennar í verslanir hér á landi. Thelma sótti sér innblástur frá litlum hugarheimi sem hún skapaði í kringum portfolio möppuna sína. „Ég hafði teiknað upp nokkrar konur sem eru partur af hugmyndavinnunni. En þegar ég hélt fyrirlestur með kynningu á möppunni minni ákvað ég að hafa hana á íslensku því ég vildi ekki að neinn skildi mig.“ Það ríkir því ákveðin dulúð yfir hönnuninni, en á öllum myndunum má finna dulkóða, hannaðan af Thelmu.

 

Flíkurnar, ásamt plakötum með teikningum af innblæstrinum, eru nú fáanlegar í verslun Bianco í Kringlunni. Einnig er hægt að hafa samband við Thelmu á Facebook síðunni Thelma. Fatalínan einkennist af fallegum prjónaflíkum í svörtum, gráum og hvítum tónum, sem passa einstaklega vel inn í haustið. Sjálfbærni var einnig ofarlega í huga Thelmu við hönnun línunnar. „Í náminu er lögð mikil áhersla á sjálfbæra tísku og sjálf hef ég alltaf heillast af flíkum sem fela í sér lítil smáatriði sem gera mér kleift að nota flíkurnar á mismunandi hátt, svo ég ákvað að samtvinna þetta tvennt inn í fatnaðinn minn.“

Thelma sækir innblástur í eigin hugarheim sem hún skapar með teikningum sínum.
Thelma sækir innblástur í eigin hugarheim sem hún skapar með teikningum sínum.

 

22991 thelma prjónapeysa
Thelma hefur prjónað frá 6 ára aldri og eru prjónaflíkur undirstaða hönnunar hennar í dag. Mynd/Thelma Steimann.

 

22991 thelma knit jersey
Fyrsta fatalína Thelmu einkennist af fallegum flíkum í gráum, svörtum og hvítum tónum sem passa einstaklega vel inn í haustið. Mynd/Thelma Steimann.

Prjónið er áhugamál – saumaskapurinn vinna

„Prjónavörurnar mínar eru undirstaða hönnunarinnar minnar. Mér finnst notalegt að dreifa huganum í smá prjónaskap. Ég lít heldur ekki á prjónið mitt sem vinnu, það er meira hobbíið mitt á meðan saumaskapurinn er vinnan,“ segir Thelma. Í framtíðinni sér hún fyrir sér að vinna áfram að sinni eigin fatalínu. „Til að afla mér meiri reynslu get ég ráðið mig inn hjá fyrirtækjum sem hafa áhuga á þekkingu minni og hanna fyrir þau prjónavörur. Eins og staðan er núna er ég opin fyrir öllu og tek bara einn dag í einu.“ Það verður því spennandi að fylgjast með Thelmu og sjá hvað hún verður með á prjónunum í framtíðinni.

 

The post Hef alltaf verið með eitthvað á prjónunum appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652