„Ég sé ekkert því til fyrirstöðu að eignast barn og stunda nám í viðskiptum samhliða,“ segir Halla Vilhjálmsdóttir leikkona, sem í dag gengur undir nafninu Halla Koppel.
Halla er að hefja MBA-nám við Oxford-háskóla sem kannski væri ekki í frásögur færandi ef hún hefði ekki eignast sitt fyrsta barn á miðvikudaginn í síðustu viku.
Fjallað er um skólagöngu Höllu á vef Financial Times og boðað að hún munu skrifa reglulega um upplifun sína þar. Segir í umfjöllun FT að erfiðlega hafi gengið að laða konur að fullu MBA-námi og að forvitnilegt verði að fylgjast með því hvernig Höllu reiðir af. Ekki sé þó viturlegt að veðja gegn henni, sé ferill hennar skoðaður.
Rifjað er upp að Halla hafi lokið leiklistarnámi í Bretlandi og í kjölfarið leikið á Íslandi, sungið á sviði og í söngleikjum auk þess að stýra sjónvarpsþætti. Eftir að Eyjafjallajökull gaus árið 2010 hafi hún snúið aftur til Bretlands. Þar hafi hún rekið líkamsræktarstöðvar og í kjölfarið fengið áhuga á rekstri. Hún ákvað að mennta sig á því sviði og fór í GMAT-próf þar sem hún fékk yfir 700 í einkunn, sem ku vera sjaldgæft. „Þetta er frekar óhefðbundinn bakgrunnur, en allt gagnast þetta,“ segir Halla.
Þá segir að Halla hafi ferðast um á mótorhjóli og klifið fjöll, til að mynda af fjóra af sjö hæstu tindum í hverri heimsálfu. Hún ferðaðist víða á meðan hún gekk með barnið sem nú er fætt. „Barnið mun ábyggilega tala nokkur tungumál þegar það fæðist,“ segir Halla í léttum tón.
Hún kveðst ekki stressuð yfir því að hefja MBA-nám við Oxford-háskóla. „Þetta er rétti tíminn fyrir mig til að fara í MBA-nám og rétti tíminn til að eignast barn,“ segir hún og er hörð á því að ekki komi til greina að hætta við eða fresta náminu. „Eftir ár verður barnið ársgamalt og það verður martröð.“
Skólayfirvöld í Oxford styðja við bakið á henni. „Ég fæ herbergi til að gefa brjóst og þau munu taka upp fyrirlestra sem ég kann að missa af.“
Mamma Höllu mun búa með henni fyrst um sinn. Vinnuveitandi hennar, Icelandair, gaf henni svigrúm til að sinna störfum sínum í fjarvinnslu frá Bretlandi. Halla segir að allir hafi sýnt sér mikinn stuðning en hún hafi þurft að sækja stuðninginn. Það þurfi líka að hafa fyrir hlutunum eigi að breyta því hversu fáar konur eru í stjórnunarstöðum.
The post Halla Vilhjálms í MBA-nám: Fær sérherbergi til brjóstagjafar appeared first on Fréttatíminn.