RÚV býður öllum landsmönnum að taka upp myndavélina á morgun, miðvikudaginn 30. september, og segja í lifandi myndum frá lífi sínu þennan dag. Hyggst Ríkisútvarpið búa til heimildarmynd um þennan tiltekna dag í lífi þjóðarinnar.
Hvað er þjóðin að fást við? Hvað er í gangi í lífi hennar? Hver eru verkefni dagsins? Fólk er hvatt til að hafa myndefnið persónulegt og um eitthvað sem skiptir það máli. Heimildarmyndin mun kallast Dagur í lífi þjóðar og á að snúast um okkur öll – allir mega taka þátt. Myndin verður frumsýnd á RÚV í tengslum við hálfrar aldar afmæli RÚV 30. september 2016.
The post Hvetja landsmenn til að kvikmynda dag í lífi sínu appeared first on Fréttatíminn.