Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Nokkrar athugasemdir: Slysahætta fyrir hjólreiðafólk

$
0
0

7. ágúst birtist grein í Fréttatímanum með fyrirsögninni hér að ofan. Ég hef því miður ekki haft tóm til að gera nokkrar athugasemdir við hana til birtingar í blaðinu fyrr en núna.
Í greininni er rætt við Morten Lange, varamann í stjórn Landssambands hjólreiðamanna. Morten telur að hætta geti skapast á göngustígum milli hjólafólks og hunda og þá væntanlega gangandi vegfarenda með hunda. Hann telur að mesta hættan stafi af hundum sem ganga við taum sem má lengja og stytta.

Einnig er rætt við Rúnu Helgadóttur, starfsmann Hundaræktarfélags Íslands. Hún segir að þjálfarar kenni eigendum að láta hundinn jafnan ganga sér við vinstri hlið eins og á hundasýningum. Samt draga bæði í efa að þetta sé heppilegt á göngustígum því að þar er hægri umferð eins og alls staðar annars staðar og hundgreyið dæmist þá til að ganga á miðri gangbrautinni og þvælast fyrir öllum. Að endingu eru Morten og Rúna sammála um að göngustígar séu fyrir alla, menn, hunda, börn og hjólreiðafólk; allir eigi bara að sýna tillitssemi.

Ég er alveg á öndverðum meiði við þetta ágæta fólk – nema hvað varðar tillitssemina. Það er viss tegund hjólreiðamanna sem skapar hættu á göngustígum fyrir alla gangandi vegfarendur, tvífætta og ferfætta.

Ellert Sigurbjörnsson
Ellert Sigurbjörnsson

Reykjavíkurborg og nágrannabyggðir hafa gert kraftaverk í lagningu göngu- og hjólreiðastíga um allar trissur; út á Seltjarnarnes, fyrir neðan Ægissíðu, inn með Skerjafirði og Fossvogi og þaðan út í Fossvogsdal og Elliðaárdal, tvær leiðir upp í Mosfellssveit og loks í Heiðmörk og til Hafnarfjarðar. Á öllum þessum leiðum er skírt afmarkað hvor brautin er fyrir göngufólk (skilti með fullorðinn sem leiðir barn) og hjólreiðafólk með skilti sem sýnir reiðhjól.

Við göngumenn (sumir með hunda) hættum okkur aldrei út á hjólabrautir en við höfum heldur ekkert á móti því að á gangbrautum séu börn á reiðhjólum, enda væri þeim bráð hætta búinn á hjólreiðastígum. Ekki ömumst við heldur við hægfara hjólreiðamönnum, til að mynda á göngustígnum sem liggur nær sjónum við Ægisíðu og Skerjafjörð. En á þessum slóðum skapast einmitt mest hætta af hraðaglöðum hjólreiðamönnum sem taka göngustíginn fram yfir hjólreiðastíginn sem liggur fjær sjónum. Varla er það út af útsýninu því að allt snýst um hraðann.

Best væri að hver héldi sig á sinni braut og það gerir líka flest hjólafólk. Á stöku stað er ekki gerlegt að hafa afmarkaðar brautir, til að mynda við Tjörnina, þegar hærra dregur í Öskjuhlíð og sums staðar í Elliðaárdal og Heiðmörk.

Ég hef sem betur fer ekki oft orðið var við annað á þessum stöðum en að hjólreiðafólk sýni fyllstu tillitssemi – með örfáum undantekningum.

Bjallan bjargar oft.
Ellert Sigurbjörnsson tíkarfóstri

The post Nokkrar athugasemdir: Slysahætta fyrir hjólreiðafólk appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652