Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Ferðafólk varað við vegna Skaftárhlaups

$
0
0

„Hlaupið vex gríðarlega hratt, mun hraðar en venjulega og það má búast við að það nái hámarki síðar í dag eða nótt,“ sagði Snorri Zóphaníasson hjá Veðurstofunni í samtali við Fréttatímann í gær, fimmtudag. Skaftárhlaup hófst aðfaranótt sunnudags en síðasta Skaftárhlaup var í júní 2010 og segir Snorri mega leiða að því rökum að hlaupið sé kraftmikið núna vegna þess hversu langt sé liðið frá síðasta hlaupi. Aldrei hefur liðið jafn langur tími á milli hlaupa, venjulega liða um 24 mánuðir en 36 mánuðir var lengsta hléið fram að þessu. Mögulegt er að Skaftá flæði yfir vegi sem liggja nærri árbökkum og auk þess berst brennisteinsvetni með hlaupvatninu og ferðafólki er því ráðlagt að halda sig fjarri jöðrum Skaftárjökuls, Tungnárjökuls og Síðujökuls á meðan hlaupið stendur yfir.
„Það eru engin mannvirki nema þá kannski vegir í hættu en allar brýrnar á svæðinu eru byggðar með hlaup í huga,“ segir Snorri. „En þó ekki skemmist mannvirki þá eru þessi hlaup ekki skemmtilegt fyrirbrigði því þau bera svo mikinn aur yfir falleg hraun og svo brjóta þau fallegt land og tún.“

skafta_kort_1-heilt
Upptök hlaupa í Skaftá eru undir tveimur jarðhitakötlum í Vatnajökli. Þegar hleypur úr þeim rennur vatnið fyrst um 40 km undir jöklinum og síðan 28 km eftir farvegi Skaftár áður en það kemur að fyrsta vatnshæðarmæli, sem er viðvörunarmælir við Sveinstind. Það tekur vatn nokkurn tíma að ná niður að þjóðvegi en útbreiðsla þess nær þó ekki hámarki fyrr en nokkru eftir að það tekur að draga úr rennsli við Sveinstind.

SONY DSC

Á myndinni sést vatn flæða um Eldhraun við þjóðveginn í hlaupinu 2008, og einnig sést glitta í afleggjarann heim að bænum Skál. Undir venjulegum kringumstæðum er farvegur árinnar upp við fjallið. Mynd frá Veðurstofunni.

 

The post Ferðafólk varað við vegna Skaftárhlaups appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652