Guðný Halldórsdóttir Laxness kvikmyndaleikstjóri talar tæpitungulaust í forsíðuviðtali Fréttatímans. Hún ræðir lífið í Mosfellsdal, upplifun sína af því að greinast með krabbamein, grasið sem eykur matarlystina og kvikmyndina sem hefur verið í farvatninu síðastliðin ár.
Hún segir þó mikla þrautseigju þurfa til að fylgja hugmynd eftir og halda henni ferskri þegar handritið stoppi alltaf í Kvikmyndamiðstöð. „Þessi bransi er þannig gerður að maður þarf að bíða lengi eftir að hugmynd verði að veruleika en mér finnst ég hafa þurft að bíða ansi lengi. Myndin sem mig langar að gera fjallar að einum þræði um staðgöngumæðrun sem er málefni sem ég er búin að velta fyrir mér í mörg ár. Svo núna eru allir að tala um staðgöngumæðrun og þá missir maður dálítið móðinn.“
„Eins og strákarnir eru nú að gera góðar myndir þá finnst mér orðið helvíti leiðinlegt að sjá aldrei myndir um og eftir konur. Ég vil fá að vita eitthvað meira um konur, við erum með annan hugarheim og meira en helmingur af áhorfendum eru konur sem geta ekki samsvarað sig við þessa karla í krísu. En nú er þessi kvótaumræða sem betur fer farin af stað og sem betur fer hafa karlarnir, þessar elskur, nú komið okkur konunum til hjálpar, því þeir eru vinir okkar og þykir þetta jafn vandræðalegt og okkur. Og þegar þeir opnuðu munninn og báðu um kvóta þá loksins gerðist eitthvað. Svo ég hlýt að fá að gera mína mynd núna.
http://http://www.frettatiminn.is/krabbameinid-var-ekki-beint-kjaftshogg/
The post Vill sjá kvikmyndir um og eftir konur appeared first on Fréttatíminn.