Okkur Stefáni hefur lengi þótt sopinn góðu og maður hefur látið þetta á móti sér, að rannsaka þetta. Þetta er skítadjobb en einhver verður að sinna því,“ segir Höskuldur Sæmundsson bjórsérfræðingur.
Höskuldur er einn fjögurra kennara í Bjórskólanum þar sem þúsundir Íslendinga hafa sest á skólabekk síðustu fimm árin. Nú hafa Höskuldur og Stefán Pálsson, samkennari hans þar, tekið höndum saman og sett saman framhaldsnámskeið þar sem lögð er áhersla á handverksbrugghús og fjölbreytta flóru bjórtegunda sem þeim fylgja, bæði hér á landi og úti í heimi.
„Á þessum rúmu fimm árum sem við höfum verið með Bjórskólann hefur orðið fáránleg breyting á bjórlandslaginu á Íslandi. Mikróbrugghús og -barir hafa sprottið upp eins og gorkúlur. Við vorum farnir að sjá það að fólk kom aftur í Bjórskólann en var farið að þyrsta í frekari fróðleik. Þess vegna settumst við niður með Jarðþrúði, rektor Bjórskólans, og lögðum drög að þessu framhaldsnámi. Ef við segjum að Bjórskólinn sé grunnurinn þá er þetta fyrir lengra komna og er aðeins erfiðara nám,“ segir Höskuldur.
Framhaldsnámskeiðið verður á miðvikudagskvöldum en hægt er að bóka hópa á öðrum tímum, rétt eins og í Bjórskólanum. Höskuldur segir að á námskeiðinu reki þeir Stefán sögu handverksbruggunar í heiminum, bæði í Bandaríkjunum, Evrópu og Skandinavíu.
„Svo tökum Ísland sérstaklega fyrir, rekjum söguna hér innanlands og spjöllum um brugghús og bari. Fólk sem sækir þetta námskeið kemur út öllu fróðara um þessa „slow food“ hreyfingu bjórsins.“
Höskuldur og Stefán sendu frá sér Bjórbókina í fyrra og vakti hún talsverða lukku, seldist nánast upp fyrir jól. Höskuldur segir að þeim félögum leiðist ekki að viða að sér fróðleik um bjór og miðla honum áfram.
„Við erum báðir í eðli okkar grúskarar. Við höfum þetta nörda element í okkur að þurfa alltaf að fletta öllu upp og kanna. Í þessu umhverfi hefur maður auðvitað byggt upp þekkingu og við reynum að setja hana í samhengi.“
Hann segir að það sé áhugavert að á meðan bjórsala í heiminum hafi svolítið dregist saman þá séu mikróbrugghúsin í sókn. Og þar sem við Íslendingar gerum alltaf allt af fullri alvöru sé míkróbrugg-byltingin mjög áberandi hér.
„Við erum dellu þjóð. 1993 voru allir með sveppinn, um aldamótin voru allir að brugga vín. Það þótti enginn maður með mönnum nema hann væri með plasttunnur í kjallaranum og nú safna flöskurnar ryki við hliðina á fótanuddtækjunum. Í kringum 2005 voru allir að spila póker og nú eru það hjól, crossfit og bjórinn sem eru tískufyrirbæri. Ég hef trú á að bjórinn eigi eftir að eldast öllu betur en pókerinn, jafnvel þó þessi bruggbylgja eigi eftir að dofna. Nýsköpunin á eftir að skila okkur á ótrúlegar slóðir.“
Fróðleiksfýsn Höskuldar og félaga hans virðist eiga sér lítil takmörk. Þannig fréttist af honum og Stefáni ásamt Atla Þór Albertssyni og Sveini Waage, samkennurum þeirra í Bjórskólanum, á Októberfest í München á dögunum.
„Já, við skruppum í námsferð, stífa endurmenntunarferð. Þetta er eitthvað sem ég mæli með fyrir alla. Þetta var ótrúleg upplifun og stemningin kynngimögnuð. Við fórum að sjálfsögðu í lederhosen og allt tilheyrandi – það var ekki annað hægt.“
The post Fólk var farið að þyrsta í frekari fróðleik um bjór appeared first on Fréttatíminn.