Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Notar YouTube til að bæta við kunnáttuna

$
0
0

Hvenær vaknaði áhugi þinn á förðun?

Það var virkilega snemma, þegar ég var rúmlega tveggja ára komst ég í snyrtibuddu frænku minnar og hef hreinlega ekki komist upp úr henni síðan.

Hvar lærðir þú förðun?

Ég for í MOOD Makeup School og fékk diplómuna mína þaðan. En ég hugsa að ég hafi lært mest á því að horfa á YouTube í gegnum árin og prófa mig áfram. YouTube er nefnilega snilldar græja fyrir þá sem vilja bæta við kunnáttu sína á einfaldan hátt.

Hvernig myndir þú lýsa stílnum þínum?

Mér finnst alltaf svolítið erfitt að tengja mig einum stíl, mér finnst ég bara gera allskonar og er óhrædd við að prófa eitthvað nýtt. En samt finnst mér ég aldrei geta gert neitt of væmið, það verður alltaf að vera eitthvað smá töffaralegt með.

Hvert sækirðu þér innblástur?

Innblásturinn kemur allstaðar frá. Mér finnst mjög skemmtilegt að fylgjast með samfélagsmiðlum, þá aðallega kannski Instagram og YouTube, þar er rosalega mikið af hæfileikaríku fólki sem gaman er að skoða. Annars er það bara frá fólkinu í kringum mig og því sem er að gerast í heiminum. Stundum er það bara eitthvað kúl outfit eða litrík padda sem gefur manni hugmyndir.

Hvað varð til þess að þú fórst að blogga?

Ég hef lesið blogg í mörg ár og alltaf langað að prófa að gera eitthvað svona sjálf en ekki þorað. Svo fattaði ég bara að ég yrði að prófa, annars myndi ég líklega alltaf sjá eftir því og skellti mér bara í þetta. Ég hef allavega ekki séð eftir því hingað til.

Hver hefur verið helsta áskorunin?

Að vera frumleg en á sama tíma passa að vera ég sjálf. Það eru augljóslega alltaf ákveðin trend í gangi og mikilvægt er að setja sinn svip á þau ef maður ætlar að fylgja þeim eftir og passa að detta ekki í þann pakka að gera það sem allir aðrir eru að gera.

Hvaða spurningar færðu oftast frá lesendum þínum?

Aðallega með hverju ég mæli í hitt og þetta. Annars eru þetta líka mikið af beiðnum um að sýna eitthvað ákveðið, hvort sem það er eitthvað ákveðið útlit eða tækni.

Nefndu þrjú bestu förðunarráðin sem þú getur gefið?

Hugsa vel um húðina er númer eitt, tvö og þrjú. Mér finnst samt líka alltaf mikilvægt að fólk viti að það er allt leyfilegt þegar kemur að förðun. Það eru engar fastar reglur, þetta þvæst allt af.

Á hvaða aldri varstu þegar þú fórst að farða þig?

Ætli það hafi ekki verið í kringum fermingu, eins og hjá svo mörgum öðrum.

Hvaða trend heillar þig mest núna?

Ég er rosalega hrifin af þessu látlausa útliti sem er eins og maður hafi ekkert haft fyrir því sem er að koma inn núna. Fersk ljómandi húð, án mikillar skyggingar og sterkar brúnir. Mér finnst það alltaf voðalega fallegt og þægilegt útlit sem allir ættu að geta framkallað.

23164 Vala Fanney1

Blogg – Vala Fanney
YouTube – valafanney
Instagram – @valafanneymua
Snapchat – VFmakeup

The post Notar YouTube til að bæta við kunnáttuna appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652