Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Iceland Airwaves: Hrærigrautur sem maður kastar sér í

$
0
0

Natalie Gunnarsdóttir DJ Yamaho

„Ég er að koma fram í ár og ég man ekki í hvaða skipti það er. Ég man heldur ekki hvað ég er búin að fara á margar hátíðir, ég er orðin svo gömul að ég man það ekki. Þær eru orðnar ansi margar samt. Í gegnum tíðina eru það tónleikar The Knife í fyrra sem voru þeir flottustu og kraftmestu tónleikar sem ég hef séð. Komu mér mjög á óvart. Í ár er eitt band frá New York sem er að spila „off venue“ sem mig langar að sjá og vinur minn benti mér á. Ég bara man ekki alveg hvað þeir heita akkúrat núna. Þeir eru víst að gera spennandi hluti og svo sé ég alltaf Gus Gus af gömlum vana. Mér finnst best að flakka bara um og láta koma mér á óvart. Þetta er hrærigrautur sem er best að kasta sér inn í og láta sig berast með straumnum.“

The post Iceland Airwaves: Hrærigrautur sem maður kastar sér í appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652