Sú ástríða sem eigandi merkisins, Daninn Ole Henriksen, gefur vörum sínum hefur skapað honum nafn um allan heim og er hann í uppáhaldi meðal viðskiptavina og fjölmiðlafólks víðs vegar um heiminn. „Ole er þekktur fyrir glaðværan persónuleika og litríkar pakkningar á snyrtivörunum hans endurspegla hans frjálslega fas,“ segir Jóna Sigríður Angantýsdóttir, snyrtifræðingur og eigandi Carita Snyrting, en þar er boðið upp á heildrænar Ole Henriksen meðferðir.
Náttúruleg fegurð
Húðvörur Ole Henriksen eru unnar úr náttúrulegum innihaldsefnum og einkennast af einfaldleika og skemmtilegri litadýrð og eru efnin án parabena. Vörurnar hafa ekki bara jákvæð áhrif á húðina heldur ber sérhver vara með sér sérstakan ilm sem gefur umhirðu húðarinnar nýja upplifun. Vörurnar eru allar unnar úr virkum efnum sem finnast í náttúrunni og er það skoðun Ole Henriksen að fegurðin eigi að vera náttúruleg og án þjáninga. Hann hefur það að leiðarljósi við hönnun línunnar að allir eigi að geta verið með fallega húð en það þurfi rétt efni fyrir hverja og eina húðgerð.

Heildrænar meðferðir
Í Ole Henriksen línunni er að finna andlitshreinsa, andlitsvötn, serum, andlitskrem, augnkrem, maska, kornakrem og ýmsar vörur fyrir líkamann. Sítrus er afgerandi innihaldsefni hjá Ole Henriksen og áhrif efnanna eru upplífgandi vegna ilmsins og áhrifarík á margan hátt fyrir húðina vegna þeirra vítamína sem þau innihalda. „Mikil rannsóknarvinna og sérþekking liggur að baki hverrar vöru sem hver er hönnuð til að takast á við eða meðhöndla ólík húðvandamál,“ segir Jóna Sigríður. Snyrtifræðingarnir á Carita Snyrting í Dalshrauni í Hafnarfirði nota húðvörur frá Ole Henriksen í sínum meðferðum.
Unnið í samstarfi við Carita snyrtingu
The post Litríkar og náttúrulegar húðvörur appeared first on Fréttatíminn.