Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Hvenær er þörf á sérstakri hjólatryggingu?

$
0
0

Hjólamenningin hér á landi er í miklum blóma. Hjólum og hjólreiðafólki fer fjölgandi og vinsældir hjólreiðakeppna aukast ár frá ári. Að mörgu þarf að huga áður en haldið er út í hjólasumarið og eru tryggingamál ofarlega á listanum. Fréttatíminn fékk Jóneyju Hrönn Gylfadóttur, sérfræðing hjá Sjóvá, til að fara yfir hvað þarf að hafa í huga þegar kemur að hjólatryggingum.

„Fjölskyldutrygging bætir ýmis tjón sem verða á reiðhjólum en bætur eru mismunandi eftir því hvers konar tryggingu þú ert með,“ segir Jóney. Algengasta tjón sem hjólreiðafólk verður fyrir er þegar það lendir í því að reiðhjólum þeirra er stolið ýmist utandyra eða í innbrotum, að sögn Jóneyjar. „Til að fá bættan þjófnað þarf hjólið að hafa verið læst utandyra við fastan hlut eða sjáanleg merki um innbrot. Við mælum því með að hjól séu ávallt læst í reiðhjólageymslum og öðrum svæðum þar sem margir ganga um. Reiðhjólageymslur eru oft opnar og því yrðu ekki sjáanleg merki um innbrot ef hjóli væri stolið.“

Verðmæti hjólsins skiptir máli
Jóney segir að mikilvægt sé að hafa verðmæti hjólsins í huga þegar það er tryggt. „Dýrum reiðhjólum hefur fjölgað gríðarlega í takt við aukinn áhuga á hjólreiðum. Ef þú átt hjól sem er verðmætara en 500.000 krónur mælum við með að keypt sé sérstök trygging fyrir reiðhjól.“ Líkt og er með hefðbundna heim­il­is- eða fjölskyldu trygg­ingu er eig­in áhætta 25% en með því að tryggja hjólið sér er það bætt óháð verðmati.

Sérstök slysatrygging fyrir hjólakeppnir
Þeir sem ætla að keppa á hjóli þurfa að huga sérstaklega að tryggingum. „Í frítímaslysatryggingu sem fylgir ákveðnum fjölskyldutrygginum eru bætt slys í íþróttum sem stundaðar eru til heilsubótar og skemmtunar,“ segir Jóney. Sú trygging bætir hins vegar ekki slys sem verða í keppni eða við æfingar til undirbúnings fyrir keppni. „Til að þú sért tryggður í keppnisíþróttum ráðleggjum við því fólki að hafa almenna slysatryggingu.“ Það er því fyrir öllu að tryggja bæði hjólið og hjólreiðakappann, áður en haldið er út í hjólasumarið.

The post Hvenær er þörf á sérstakri hjólatryggingu? appeared first on FRÉTTATÍMINN.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652