„Undirbúningur gengur afskaplega vel og ég er um þessar mundir að hengja upp í Gallerí Fold,“ segir Þorgrímur Andri listmálari. „Það er pínu stress að raða upp og skipuleggja og slíkt, en um leið mjög skemmtilegt. Ég hef tekið þátt í fjölda samsýninga en þetta er önnur einkasýningin mín,“ segir hann. „Sú fyrsta í þessu galleríi. Sýningin samanstendur af tveimur seríum. Annarsvegar þar sem ég fókusera á íslenska hestinn, og hinsvegar á hrafninn. Þessar seríur spila svolítið vel saman þó þær séu ólíkar,“ segir hann.
„Þetta eru allt olíumyndir og svo eru líka nokkrar kolamyndir sem fá að fljóta með, svona til að auka fjölbreytnina. Ég byrjaði að fást við að mála í kringum 2010, svo ég hef ekki verið svo lengi í þessu,“ segir hann. „Ég var í námi erlendis þar sem ég var að læra tónsmíðar og datt óviljandi inn á þessa listmálun. Ég féll bara svo algerlega fyrir því og hef einbeitt mér mikið af því síðan. Tónlistin hefur nánast lagst af hjá mér síðan. Ég tek að mér nokkur áhugaverkefni í tónlistinni, og þá helst einhverjum samstarfsverkefnum eins og dansverkum og slíku. Annars á listmálunin allan minn fókus og er vinnan mín í dag.
Umhverfið í listmáluninni hefur breyst held ég að undanförnu,“ segir Þorgrímur. „Það er mjög mikið um það að fólk kaupi mín verk í gegnum heimasíðuna mína. Áður fyrr þá var eini sénsinn fyrir málara að selja, að halda sýningu eins og ég er að gera núna. Ég fæ mikið af heimsóknum í gegnum heimasíðuna, sem og á Facebook og Instagram,“ segir hann. „Fólk kemur svo í heimsókn og skoðar og oftast kaupir það mynd. Sýningar eru ekki eins mikilvægar og áður, þó þær séu auðvitað mjög skemmtilegar. Markaðurinn er bara orðinn svo opinn,“ segir Þorgrímur Andri Einarsson listmálari. Sýningin Hesturinn og hrafninn opnar á laugardaginn klukkan 15. Á heimasíðu Þorgríms www.thorgrimur.com er hægt að skoða verk hans.
The post Seríur um hesta og hrafna spila vel saman appeared first on Fréttatíminn.