Hver elskar ekki sinnep? Þetta leyndardómsfulla mauk sem passar með nánast öllu getur alltaf komið manni á óvart. Hvort sem það er sætt, sterkt, súrt, mjúkt eða gróft þá er alltaf hægt að uppgötva eitthvað nýtt. Íslenskt sinnep er svo sem ekkert sem lögð hefur verið áhersla á. Fyrir utan auðvitað SS-pylsusinnepið sem er svo ómissandi á þjóðarrétti okkar Íslendinga. Að búa til sitt eigið sinnep er aftur á móti auðveldara en marga grunar og eitthvað sem hægt er að gera heima fyrir á skemmtilegan hátt.
Sinnep er eins og vín. Fjölbreytt og misjafnt eftir ræktunarlöndum. Hér á Norðurlöndunum var í eina tíð mest um sætt sinnep, sem við þekkjum svo vel með pylsum og slíku. Frá Frakklandi þekkjum við Dijon sinnepið sem nefnt er eftir héraðinu sem það er búið til, og á Indlandi er sinnep stór partur af allri matargerð. Fyrstu sögur af sinnepi eru frá fjórðu og fimmtu öld þegar Rómverjar notuðu þessi forboðnu korn í matargerð og þá sem blöndu af fleiri kryddum. Rómverjar eru svo taldir hafa farið með sinnepskorn til Gaulverja í Frakklandi og þá hafi hjólin byrjað að snúast. Árið 1292 kom hið fræga Dijon sinnep fram á sjónarsviðið í samnefndu héraði í Frakklandi og eftirleikinn þekkir hvert mannsbarn. Sinnepið má nota á margan hátt og á mun fleiri vegu en bara beint á pylsuna. Ameríska gula sinnepið passar til dæmis gríðarlega vel með góðum hamborgara. Sinnep passar einstaklega vel með mörgum fisktegundum, og fyrst það er að líða að jólum þá er fátt betra en að setja væna skeið á diskinn þegar síld er annars vegar. Þá helst gróft sinnep. Sinnepið er einnig mjög gott í allskonar sósugerð. Það passar einkar vel með sýrðum rjóma eða mæjónesi, sem og í olíudressingar á salöt og slíkt.
Það er alltaf gott að eiga nokkrar tegundir af sinnepi í skápnum og prófa sig áfram, nánast með hverju sem er.
Hér er einföld uppskrift að sinnepi sem passar með flestu.
Heimagert sinnep
Gerir u.þ.b 400 gr.
100 gr. gul sinnepskorn
150 ml. eplaedik eða hvítvínsedik
150 ml hvítvín
2 tsk sjávarsalt
U.þ.b 4-5 tarragon stilkir. Laufin tekin af.
Setjið sinnepskornin, edikið, hvítvínið og saltið í skál. Setjið plastfilmu yfir og látið standa í þrjá daga.
Á þriðja degi, setjið það sem er í skálinni í matvinnsluvél ásamt tarragoninu. Látið vélina ganga þar til blandan er orðin slétt og jöfn. Það gæti þurft að bæta við vatni en það fer eftir þykkt blöndunar. Smakkið og saltið meira ef þess þarf. Setjið í krukku sem lokast þétt og látið standa í ísskáp í sólarhring.
Þessi uppskrift er góð byrjun en það er mjög auðvelt að gera allskyns tilraunir þegar kemur að sinnepsgerð. Margir nota hina ýmsu vökva til að búa sér til mismunandi bragðtegundir. Allt frá sítrónusafa til koníaks, og allt þar á milli.
Uppskrift og mynd fengin frá www.kristingroa.com
The post Sinnepssæla appeared first on Fréttatíminn.