Rektorsskipti verða í Háskóla Íslands í dag þegar Jón Atli Benediktsson tekur við embættinu af Kristínu Ingólfsdóttur. Athöfnin fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands klukkan 14.
Jón Atli, sem gegnt hefur stöðu prófessors í rafmagns- og tölvunarfræði, sigraði í rektorskjöri á vordögum.
Kristín Ingólfsdóttir tók við stöðu rektors fyrir tíu árum af Páli Skúlasyni. Hún flytur kveðjuávarp við athöfnina í dag og afhendir eftirmanni sínum tákn rektorsembættisins. Kristín hyggst flytjast til Boston með eiginmanni sínum, Einari Sigurðssyni fyrrum forstjóra MS.
The post Jón Atli tekur við af Kristínu í dag appeared first on FRÉTTATÍMINN.