Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Geðfatlaðir studdir til sjálfstæðrar búsetu

$
0
0

Velferðarsvið Reykjavíkurborgar hefur gert samning við Geðsvið Landspítala um samstarf meðferðargeðdeildar og íbúðakjarna fyrir geðfatlað fólk. Markmið verkefnisins er að auka líkur á sjálfstæðri búsetu geðfatlaðra einstaklinga til framtíðar með eða án stuðnings frá sveitarfélaginu og geðsviði. Samstarfið er tilraunaverkefni, til tveggja ára, þar sem velferðarsvið skuldbindur sig til að útvega tvær til þrjár íbúðir í samstarfi við Félagsbústaði og þjónusta íbúa þeirra frá íbúðakjarna við Austurbrún. Þjónustan samsvarar hálfu stöðugildi stuðningsráðgjafa.

The post Geðfatlaðir studdir til sjálfstæðrar búsetu appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652