Caralluma er 100% náttúrulegur kaktus sem aðstoðar við þyngdarstjórnun, eykur fitubrennslu og hamlar fitumyndun. Caralluma kemur jafnvægi á svengdarhormónið „Ghrelin,“ dregur úr sykurþörf, narti milli mála og löngun í óhollustu. Caralluma hentar þeim sem vilja létta sig, auka fitubrennslu, ná stjórn á mataræðinu, losna við sykurlöngun og ná auknum árangri í líkamsræktinni.
Aukin orka
Rósa Björg Guðlaugsdóttir er 44 ára Kópavogsbúi, hárgreiðslumeistari og förðunarfræðingur, en íþróttir hafa einnig verið stór hluti af lífi hennar. „Ég hef alla ævi verið íþróttamanneskja og stundaði knattspyrnu til 20 ára aldurs, en þá tóku við lyftingar og þrektímar.“ Rósa Björg er einnig menntaður einkaþjálfari. Hún hefur hins vegar þurft að glíma við stoðkerfisvandamál. „Þegar þau komu upp byrjaði ég að lyfta af meiri áhuga. Ég er mikil keppnismanneskja og það er líklega ástæðan fyrir því að ég byrjaði í fitness. Í því get ég lyft og æft með meiðslin mín í huga.“
Rósa er Íslandsmeistari í fitness í flokki 35 ára og eldri. Hún lauk svo keppnisárinu með því að enda í öðru sæti á bikarmóti sem fram fór í nóvember. Rósa Björg notar Caralluma til að fá aukna orku. „Caralluma hefur bjargað mér síðastliðið hálfa árið. Ég var orðin þreytt eftir sumarið, var að jafna mig eftir slys og það voru miklar breytingar í gangi hjá mér. Eftir að ég prófaði Caralluma fann ég fyrir aukinni orku yfir daginn.“
Gengur betur að ná settum markmiðum
Með Caralluma átti Rósa Björg auðveldara með að ná markmiðum sínum. „Ég fann að undirbúningur fyrir bikarmótið var auðveldari en áður, ég þreyttist minna og fitubrennslan var mun meiri en áður.“ Auk þess fann Rósa Björg minna fyrir svengd. „Ég fann að ég var ekki eins svöng eins og ég hef átt til á kvöldin en ég tengi það við þessa auknu brennslu sem hélt mér gangandi.“
Rósa Björg mælir með Caralluma fyrir þá sem þarfnast aukinnar orku yfir daginn. „Þessi vara breytir fituforðanum okkar hraðar í orku og heldur blóðsykrinum jafnari yfir daginn. Þess vegna erum við orkumeiri, þurfum minna að borða á kvöldin og höfum betri stjórn á mataræðinu.“ Caralluma er fáanlegt í öllum helstu apótekum landsins, Heilsuhúsinu, Hagkaup, Lifandi markaði, Fjarðarkaupum, Heilsuveri, Heilsuhorninu Blómavali, Orkusetrinu, Líkami og lífstíll.is, Systrasel, Heilsulausn.is og á Heimkaup.is.

Hvað er Caralluma?
Caralluma er safaríkur kaktus sem vex villtur í eyðimörkum Indlands og Afríku. Caralluma kemur jafnvægi á svengdar hormónið „Ghrelin“ sem getur kallar á ofát, sætuþörf og löngun í óhollustu. Rannsóknir sýna að Caralluma hindrar fitumyndun með því að hamla virkni á ensíminu „enzyme citrate lyase“. Ensímið gegnir lykilhlutverki í myndun og uppbyggingu fitufrumna. Caralluma hjálpar til við að ná stjórn á mataræðinu, hindra fituuppbyggingu og auka brennslu.

Virkni Caralluma:
- Kemur jafnvægi á svengdarhormónið „Ghrelin“.
- Eykur fitubrennslu og þyngdartap.
- Seðjar hungur.
- Eykur orku og úthald.
- Hamlar fitumyndun í líkamanum.
- Hjálpar til við að ná skjótari árangri samhliða líkamsrækt.
Unnið í samstarfi við Balsam
The post Betri árangur með Caralluma appeared first on Fréttatíminn.