Bókaútgefendur eru kampakátir þessa dagana því bóksalan á jólavertíðinni hefur gengið vel. „Ég er glimrandi alsæl, því lagerinn er að tæmast. Ævisaga Brynhildar Georgíu var að klárast og þriðja prentun á Leynigarðinum, en það enn eitthvað til af nýju bókinni, Týnda hafinu. Hefði völva Vikunnar sagt mér að Bjartur ætti eftir að selja 10 þúsund litabækur árið 2015, hefði ég hrist hausinn yfir vitleysunni,“ segir Guðrún Vilmundardóttir, útgefandi hjá Bjarti.
En það eru ekki bara litabækur sem ganga vel. „Ég held að útgefendur og höfundar séu almennt sáttir og glaðir. Bókin lifir!“
The post Glimrandi alsælir útgefendur appeared first on Fréttatíminn.