„Meðlimir sameinuðust á ný um helgina og æfingar hófust um leið,“ segir Andri Ólafsson, bassaleikari Moses Hightower. Tveir meðlima sveitarinnar eru lítið á Íslandi þar sem Daníel Böðvarsson gítarleikari býr í Berlín og Steingrímur Teague píanóleikari er í tónleikasveit Of Monsters And Men sem er sjaldnast heima. Magnús Tryggvason Eliassen trommari stendur þó vaktina með Andra á Íslandi. „Við komum aðallega saman í kringum hátíðir eins og jól og páska, en líka eitthvað yfir sumartímann,“ segir hann. „Hópurinn er nú samt alltaf í góðu sambandi með hjálp internetsins. Mismikið samt eftir því hvað er á döfinni.“
Í kjölfar fyrstu útgáfu sveitarinnar, plötunnar Búum til börn sumarið 2010, festu drengirnir í Moses Hightower sig í sessi sem dugmiklir og metnaðarfullir flytjendur, ekki síður en framleiðendur seigfljótandi og sálarskotinnar tónlistar. Sumarið 2012 kom út Önnur Mósebók, sem var m.a. valin plata ársins hjá Fréttablaðinu, en hljómsveitin fékk Menningarverðlaun DV það árið og hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir lagasmíðar og textagerð.
„Við höfum alltaf verið að gera nýtt efni, hver í sínu horni,“ segir Andri. „Við höfum nú þegar frumflutt þrjú eða fjögur ný lög og vonandi frumflytjum við annað eins á þessum tónleikum milli jóla og nýárs. Fer eftir því hvernig æfingarnar ganga,“ segir hann. „Við stefnum svo að því að klára nýja plötu í febrúar á næsta ári. Tónleikarnir á Húrra verða tvennir, 28. og 29.desember, og eru miðarnir að seljast upp. „Það gengur vel í miðasölunni og fólk þarf að vera framarlega í bítinu til þess að ná miðum, sýnist mér,“ segir Andri. „Við verðum með Styrmi Hauksson aukamann með okkur, sem er svona fimmti bítillinn í okkar sambandi. Oft höfum við verið með brass með okkur á tónleikum, en í þetta sinn ætlum við að næra egóið með því að vera bara við sjálfir,“ segir Andri Ólafsson, bassaleikari Moses Hightower.
The post Strákarnir sameinaðir á ný appeared first on Fréttatíminn.